Sumarið 2004 fundu Ágúst Borgþórsson, vélstjóri, og Unnar Sveinlaugsson, vélsmiður frá Seyðisfirði nælur í urð og grjóti á Vestdalsheiðinni. Fornleifafræðingar mæta á staðinn undir stjórn Sigurðar Bergsteinssonar minjavarðar Norðurlands Eystra og uppgvöta leifar konu frá tíundu öld, nokkrar skartnælur, líkamsleifar og um 500 perlur. Brynja Björk Birgisdóttir fornleifafræðingur skoðar perlurnar og segir frá þeim.
Fornbeinafræðingarnir Hildur Gestsdóttir og Guðný Zoëga skoða beinin og segja okkur hvort hún hafi alist upp á Íslandi og hve gömul hún var. Sigurður setur fundinn í samhengi við annan sambærilegan fund í Norgei og segir okkur frá tíðarandanum á þessum tíma.
Hver var þessi kona?
Ýmsar staðreyndir og getgátur koma fram og segir Valgerður H. Bjarnadóttir okkar m.a. að hún hafi verið völva.
Fundurinn reyndist einstakur, því aldrei áður hafa leifar svo skartklæddrar konu frá víkingaöld fundist á víðavangi.
Myndin er unnin í samstarfi við:
Þjóðminjasafn Íslands: Margréti Hallgrímsdóttur
Fornleifavernd Íslands: Kristín Huld Sigurðardóttir
Leikstjórn: Guðbergur Davíðsson
Klipping: Örn Marínó Arnarson
Tónlist: Hallur Ingólfsson
Teikningar: Sunna Sigurðardóttir
Lengd: 28 mínútur.


Recent Comments